föstudagur, 31. janúar 2014

Játningar vatnseyðsluseggs!

Hér í borg ríkti mikil gleði í gær. Afhverju? Jú af því það rigndi. Raunar mætti frekar tala um úða en rigningu en það nægði þó til að gleðja mannskapinn. Hér er nefninlega mesti þurrkur sem mælst hefur síðan sautjánhundruðogsúrkál. Undir venjulegum kringumstæðum er janúar mánuður frítími þeirra sem sinna skógareldum, varamannskapur sendur heim til sín og nokkrum starfsstöðvum lokað. En í ár er ástandið þannig að búið er að slökkva yfir 150 elda (þeir voru 25 fyrir sama tímabil í fyrra og 0 þar á undan) og enginn fær frí.

Og fólk er beðið um að spara vatn. Ekki list sem Íslendingar eru góðir í til að byrja með. Og ég gæti mögulega verið eitt versta dæmið. Ég er martröð borgarinnar í vatnsmálum, það get ég fullyrt. Fer í langar sturtur og læt vatnið renna meira að segja meðan ég sápa á mér hárið. Bursta tennur og vatnið rennur allan tíman á meðan. Ég er eins og atvinnumanneskja í vatnseyðslu. Gleymi að skrúfa fyrir í eldhúsinu. Þvæ vélar sem ekki eru alveg fullar, gleymi svo að tæma þær og þarf að skola úr aftur.  Og svona gæti ég haldið áfram.

Og nú biður Santa Monica borg íbúa og fyrirtækjarekendur að minnka vatnsneyslu sína um 20%. Og það verður að öllum líkindum ekki nóg, yfirvofandi eru takmarkanir á vatni um mögulega 15%. Eða því er borgarráð að hóta. Vatnsnotkun er nefninlega upp um 20% milli ára. Og borgin kaupir allt vatnið sitt frá stöðum þar sem miklir þurrkar eru og skortur yfirvofandi.

Hótel hér í borghefur brugðist við. Þar er keyrt á vatnslausum pissuskálum,  keyptar plöntur sem eru ekki mjög vatnsþyrstar og gestir hvattir til að endurnota allt tau. Veitingastaðir grípa til þess ráðs að hafa ekki vatn á borðum fyrir gesti heldur einungis koma með fyrir þá sem óska þess sérstaklega. Og reyna svo að fá þá frekar til að drekka vín... (spyr mig um heilsufarslegan kostnað við þann gjörning...) Pressa er sett á borgarstjórn um að setja reglur um stærð vatnsglasa á veitingastöðum. Og svo eru það blessaðir bændurnir sem þurfa að borga vatnið dýrum dómi til að geta ræktað og nóg er nú ræktað hér.

Já það er ástand. Og vatnsdrottningin skilur ekki alveg stærð málsins enda konungsdæmi mitt þekkt fyrir vatnið. Ég bíð bara eftir að mamma sendi mér stórvirkið Vatnið frá Íslandi og ætla mér að njóta þess að horfa á vatn og fræðast um vatn í þeirri dýrðar bók. En ég verð að hætta að láta kranann renna. Vera ábyrgur borgari. Sýna fordæmi. Temja mér nýja siði...

Þeir sem vilja lesa nánar um stóra vatnsmálið geta gert það hér:
 http://smdp.com/city-asks-residents-businesses-to-use-less-water/131683

2 ummæli:

  1. Ég reyni nú að fara sparlega með vatnið og er sífellt að skrúfa fyrir sturtuna hjá Erlu þegar hún byrjar að láta renna svo vatnið hitni örugglega hálftíma fyrir hálftíma sturtuna. Eina sem ég leyfi mér án takmarkana er uppvaskið..til einskis að vaska upp úr skítugu vatni :/
    Fyndnar þessar aðgerðir borgaryfirvalda, gæti ekki verið óíslenskara. Sá einmitt um daginn að frænka Erlu er með fötur í baðinu til að safna upp sturtuvatni til að nota ef það verður vatnslaust.
    Kv.Haraldur

    SvaraEyða
  2. Hahahaha, Erla verður sett í vatnsfangelsi með mér greinilega!

    SvaraEyða