 |
| Bríet í nýjum balletskóm, hún fékk líka nýja steppskó. |
Í dag fékk Bríet inngöngu í þennan líka fína Montessori leikskóla hér í götunni. Hún byrjar 6. janúar og verður hálfan dag þar. Tilgangurinn að læra ensku og undirbúa sig undir 5 ára bekk eða Kindergarten eins og hann er víst kallaður hér. Henni leist prýðilega á skólann og allt gekk vel. Svo bauðst henni að vera eftir í stofunni eða koma með okkur í viðtal og valdi að verða eftir í stofunni. Við vorum í burtu í korter en þegar við komum aftur þá var litlan mín með tárin í augunum og fannst tíminn hafa verið
of langur. Tekur á að geta ekki tjáð sig við neinn í kringum sig. Þetta var heilmikil ákvörðun að taka að setja hana í skólann enda mikil fjárfesting, við borgum háar fjárhæðir fyrir hálfan dag.
Mér skilst annars að í bekknum hennar séu börn tveggja Clipper spilara. Sel það ekki dýrara en ég keypti það, Arnar þurfti að segja mér hvað Clipper er (hitt körfuboltaliðið hérna í LA, NBA lið). Þannig að ég er að vonast eftir að komast á NBA leik í boði bekkjarsystkina Bríetar, sjáum hvernig mér gengur með það.
 |
| Ómögulegt að ná góðri mynd af systrum saman, önnur horfir alltaf frá myndavélinni |
Í gær fórum við í jólaboð hjá Riot. Þar var ýmislegt gert til að koma manni í jólaandann, það voru carolers sem sungu jólalög hástöfum, skreytingar sem líktust snjó, jólasveinn, heitt kakó með sykurpúðum og piparmyntubrjóstsykri, kanilchurros, eggnog o.fl. Svo fékk maður coupon sem hægt var að nota í foodtrucks sem lagt var fyrir utan. Mjög spes! En börnin voru glöð og þá er björninn unninn, ekki satt?
 |
| Jólaboð hjá Riot |
Nú teljum við niður í það að fá afann til okkar og svo litla bróður og kærustuna. Þá koma nefninlega jólin. Við heyrðum í dag af viðburði sem á sér stað á ströndinni hérna 25. des, leið Californíubúa til að komast í jólagírinn, jú, þá renna þeir sér á sleðum í sandhæðum sem eru búnar til fyrir tilefnið. Svo nú þarf ég að leita að sleðum. Mér datt ekki í hug að taka sleðana með frá Íslandi. Það gengur vonandi betur en þegar ég fór í dótabúð að leita að sandleikföngum fyrir dæturnar. Þar var horft undarlega á mig og mér tilkynnt að þannig hlutir væru jú seasonal og fengjust ekki á veturna. Og þetta segir hún og úti er 25 stiga hiti og á öllum rólóum er sandur. En kona kann að bjarga sér og keypti sandleikföng á amazon þar sem allt fæst og er sent heim að dyrum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli