Pabbi segir að ég sé með rakettu í rassgatinu og ég eigi að slaka á. Hinsvegar er ég ekkert rosalega góð í því, frekar en hann er sjálfur. Einkennir svolítið þessa fjölskyldu að geta aldrei gert nokkuð nema með offorsi. Svona var amma líka, algjör hamhleypa!
Með rakettuna að vopni er ég komin langleiðina með kassana. En engar áhyggjur, nóg annað eftir, gera gestaherbergið klárt fyrir Mexíkó farana og finna stað fyrir öll málverkin. Í pósti í gær, já, pósti komu svo tvö hjól í frumeindum. Sjáið til, við keyptum þau á Costco.com og voru þau 400 USD ódýrari en það sem við sáum í búðinni og skýringin liggur einmitt í þessu með að vera í öreindum sko. Ég er stikkfrí í svona samsetningarmálum vegna fæðingargalla. Enginn í minni fjölskyldu hefur hæfileika í svona samsetningar, þau eru eftirminnileg jólin þar sem við systkinin fengum eitthvað sem þarfnaðist samsetningar því pabbi eyddi dögunum á eftir bölvandi og ragnandi við að reyna að tjasla þessu saman með mömmu á hliðarlínunni að gera illt verra. Við höfum því öll systkinin fundið okkur maka með prófgráðu í ikeasamsetningu.
Um síðustu helgi fórum við í pílagrímaferð til Austur Los Angeles, vinkona mín benti mér á fullt af vintage húsgagnabúðum þar sem við fórum að skoða og komum heim með þennan líka æðislega lampa og píanóstól. Hefðum getað skipt út búslóðinni fyrir fegurðina sem rak á fjörur okkar í þessari ferð en dollararnir hafa verið hræðilega fljótir að fjúka í flutningunum svo það verður að bíða betri tíma.
Í öðrum fréttum: Erum á leið í kvöldmat til nágrannanna í kvöld. Búa í íbúðinni á móti, svalirnar þeirra horfa út á pallinn okkar. Þar eru bresk hjón með 2 stráka sem eru jafngamlir stelpunum. Búin að búa hér í 6 mánuði en í Bandaríkjunum í 9 ár reyndar. Stelpurnar dýrka þessa stráka, halda sýningar á pallinum fyrir þá þegar þeir standa á svölunum og horfa og blaðra við þá á bullmáli sem inniheldur þau orð sem þegar eru komin á ensku. Samtalið lítur því ca svona út: blablablabla "see you later" blablablablablabla "sister" blablablablabla "Christmas" blablablablablablabla "thank you". Óheyrilega krúttlegt og svakalega fyndið og það finnst þessum ljúfu strákum líka sem skilja lítið í háværu dætrum mínum.


Gaman að ná að kíkja við í gærkvöldi. Er rennibraut frá svölunum niður á pall á dagskrá?
SvaraEyðaDjö er það skemmtileg hugmynd!
Eyða