Og fólk er beðið um að spara vatn. Ekki list sem Íslendingar eru góðir í til að byrja með. Og ég gæti mögulega verið eitt versta dæmið. Ég er martröð borgarinnar í vatnsmálum, það get ég fullyrt. Fer í langar sturtur og læt vatnið renna meira að segja meðan ég sápa á mér hárið. Bursta tennur og vatnið rennur allan tíman á meðan. Ég er eins og atvinnumanneskja í vatnseyðslu. Gleymi að skrúfa fyrir í eldhúsinu. Þvæ vélar sem ekki eru alveg fullar, gleymi svo að tæma þær og þarf að skola úr aftur. Og svona gæti ég haldið áfram.
Og nú biður Santa Monica borg íbúa og fyrirtækjarekendur að minnka vatnsneyslu sína um 20%. Og það verður að öllum líkindum ekki nóg, yfirvofandi eru takmarkanir á vatni um mögulega 15%. Eða því er borgarráð að hóta. Vatnsnotkun er nefninlega upp um 20% milli ára. Og borgin kaupir allt vatnið sitt frá stöðum þar sem miklir þurrkar eru og skortur yfirvofandi.
Já það er ástand. Og vatnsdrottningin skilur ekki alveg stærð málsins enda konungsdæmi mitt þekkt fyrir vatnið. Ég bíð bara eftir að mamma sendi mér stórvirkið Vatnið frá Íslandi og ætla mér að njóta þess að horfa á vatn og fræðast um vatn í þeirri dýrðar bók. En ég verð að hætta að láta kranann renna. Vera ábyrgur borgari. Sýna fordæmi. Temja mér nýja siði...
Þeir sem vilja lesa nánar um stóra vatnsmálið geta gert það hér:
http://smdp.com/city-asks-residents-businesses-to-use-less-water/131683



