Í gær heimsóttum við Vísindamiðstöð LA. Það var alveg stórmerkilegt. Þar eru geymdir allskonar gripir og vélarhlutar sem tengjast geimferðum Bandaríkjamanna auk þess sem geimskutlan Endeavour er þar. Ég sá litla skutlu sem notuð var til að skjóta sjimpansa út í geim áður en að fyrsti maðurinn flaug út. Ég sá pínulitla skutlu sem 2 menn eyddu þremur dögum í. Hún var svo lítil að ef þeir vildu standa upp þá þurftu þeir að "suit up" í geimbúningana sína og opna þakið. Fótaplássið sem þeir höfðu í þrjá daga var eins og plássið sem við bölvum í verstu flugferðum okkar. Þrjá daga! Úff, ég fékk innilokunarkennd við að horfa á þetta. Þeir svöruðu líka spurningunni sem flestir spyrja sig þegar það kemur að geimferðum... hvernig fer fólk á klósettið... jú, því fylgja slöngur í sumum tilfellum, kúkaplastpokar í öðrum, stundum þarf að binda sig niður út af þyngdarafli og fleira áhugavert.
Punkturinn yfir i ið var svo Endeavour. Bandaríkjamenn kunna að byggja upp stemmningu. Fyrst sýndu þeir stutta bíómynd um hinstu ferð Endeavour áður en sett var í "park". Það var ferðin af LAX og inn á safnið. Ekki svo langur akstur, einar 12 mílur, en tók 68 klukkustundir. Flaug sem búin var að fljúga 25 ferðir út í geim lenti sko í vandræðum í LA traffic. Ég skil það vel. Þessi umferð hérna er hálfgerð geimvísindi hvort sem er. Allavegana. Til að koma henni á áfangastað þurfti her manna, lögreglu, slökkvilið, rafvirkja, og ég veit ekki hvað marga verkfræðinga. Það þurfti að fella 400 ára gömul tré, taka rafmagn af hlutum borgarinnar meðan rafmagnslínur og staurar voru felldir, fóðra húshorn þar sem hætt var við að hún myndi rekast í og ég veit ekki hvað og hvað. 68 klukkustundir. Og á meðan stóð fjöldi manns á götum úti til að berja viðburðinn augum.
Svo kemur maður loks inn í flugskýlið þar sem skutlan stendur. Og þar blaktir Ameríski fáninn við hún og dramatísk tónlist hljómar undir. Og svo stendur skutlan þarna. Þetta risa tröll sem er svo illa farið að ég hefði ekki flogið með henni til Akureyrar. Hún virðist plástruð saman. Og þetta flak flaug 25 sinnum út í geim frá árunum 1992-2011. En ég lét hrífast með. Hún fór út í geim sko! 25 sinnum. Og þarna stóð hún og ég líka. Litla ég og geimskutlan. Já sælir eru einfaldir!




Engin ummæli:
Skrifa ummæli